Bodegas Escorihuela er með elstu vínhúsum Mendoza í Argentínu en það var stofnað ári 1884 af Miguel Escorihuela sem nokkrum árum áður hafði flust frá Aragon á Spáni til Argentínu. Esorihuela var eitt af fyrstu vínhúsunum til að framleiða hreint Malbec-vín á þessum slóðum og meðal aðdáenda vínanna var forseti Argentínu Juan Peron, en þetta vín, President’s Blend er einmitt tileinkað honum. Fyrir um aldarfjórðungi eða svo keypti ein þekktasta vínfjölskylda Argentínu, Catena-fjölskyldan vínhúsið.
1884 President’s Blend, sem er blanda úr þrúgunum Malbec (85%), Cabernet Sauvignon og Syra er öflugt og kraftmikið vín, liturinn dökkur og djúpur, mjög þroskuð kirsuber, sólber og plóumur, ávöxturinn heitur, kryddaður, eikin áberandi, tannín kröftug. Þetta er ansi hreint mikið vín sem kallar á stórar og bragðmiklar steikur.
4735 krónur. Frábær kaup. Vín fyrir stórsteikur og villibráð.
-
10