Solebello Sangiovese Organic 2016

Poggio al Tesoro er vínhús sem Allegrini-fjölskyldan, ein af meginvínfjölskyldum Veneto, hefur verið að þróa upp á einu af mest spennandi svæðum Ítalíu þessa stundina, Bolgheri við strandlengjuna í Toskana. Solebello er eitt af vínunum þaðan, lífrænt ræktað Sangivosese, sem einnig er blandað með örlitlu af Canaiolo og Merlot. Létt, krydduð ber ríkjandi, kirsuber, brómber, rifsber, telauf, þurrt, ágæta sýra sem gerir vínið vel matvænt.

70%

2.490 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.