Sule Primitivo di Manduria 2016

Primitivo er sú þrúga sem mestu skiptir í ræktun betri rauðvína í Púglíu syðst á Ítalíu og það svæði sem talið er henta þrúgunni hvað best er Manduria sem er á norðvesturhluta Salento-skagans í Púglíu skammt frá Jónahafi. Þetta er stór og mikill Primitivo, liturinn svarblár og angan af leðri og þroskuðum, nær þurrkuðum ávöxtum, sólber, bláberjasafi og sveskjugrautur, þarna er líka leður og sveit, vínið ber með sér að vera ræktað í suðrænu sólinni en verður samt aldrei þungt, það hefur líka ágætlega spræka sýru sem gefur því líf.

80%

3.250 krónur. Mjög góð kaup. Þungt og mikið vín sem ber vel kröftugan mat.

  • 8
Deila.