Fortius er vín úr þrúgunni Tempranillo frá Navarra, sem er nágrannahérað Rioja. Það er því engin furða að stíllinn sé ekkert mjög ósvipaður Rioja-vínunum.
Vínið er farið að sýna þroska, þéttur, rauður, sætur ávöxtur, reykur og krydd í bland við vanillu.
1.799 krónur.