Shiraz hefur smám saman verið að sækja í sig veðrið í Chile þó svo að Cabernet, Marlot, Carmenere og jafnvel Pinot Noir séu enn algengari. Víngerðarmenn Chile eru hins vegar stöðugt að ná betri tökum á Shiraz-þrúgunni og finna svæði þar sem að hún nýtur sín vel.
Vínin í Casillero del Diablo-línunni er alla jafna óaðfinnanlega gerð og það á líka við um þetta vín. Það hefur dæmigerð Chile-einkenni. Það fléttast mynta saman við dökkan, svartan ávöxtinn og eftir því sem vínið loftast meira ryðst myntan fram. Þarna eru annars svört sólber og krækiber, nokkuð kryddað með nokkuð áberandi eik, og eikin er amerísk með áberandi vanillu og kakó/súkkulaði. Með grilluðu kjöti.
1.899 krónur. Góð kaup.