Peter Lehmann Classic Riesling 2009

Peter Lehmann var einn af frumkvöðlunum í ræktun Riesling-þrúgunnar í Barossa-dalnum í Suður-Ástralíu. Þótt að aðstæður þar séu mjög frábrugðnar þeim við Rín hefur þessi norður-evrópska þrúga plummað sig ótrúlega vel í áströlsku sólinni.

Classic Riesling er ódýrasta Riesling-vínið frá Lehmann og. Mildur og sætur sítrusávöxtur, lime og greip, suðrænir ávextir, míneralískt og sýrumilt. Sem fordrykkur eða með austurlenskum mat.

1.999 krónur. Góð kaup.

 

Deila.