Carmen Chardonnay 2011

Þetta hvítvín frá Carmen í Chile er mjög dæmigert fyrir þann stíl sem Chile hefur tileinkað sér í Chardonnay-vínum.

Þarna er á ferðinni ljúf nýjaheimsklassík, stappaðir bananar, ananas og ferskjur, sem sagt stútfullt af suðrænum ávöxtum. Fersk og þægilegt með björtum ávexti.

1.899 krónur. Góð kaup.

Deila.