Karamelliseraður laukur, rjómi og gráðaostur. Smá timjan. Þetta er ekki mikið flóknara en það en sósan hentar hvað best með grilluðu nautakjöti, t.d. ribeye eða nautalund.
- 2 laukar
- 25 g smjör
- 2,5 dl rjómi/matreiðslurjómi
- 50 g gráðaostur
- 2 tsk þurrkað timjan eða 2 msk ferskt timjan
- salt og pipar
Sneiðið laukinn niður. Hitið smjörið á pönnu eða í þykkbotna potti. Mýkið laukinn á miðlungshita þar til að hann hefur tekið á sig góðan lit, allt að tíu mínútur. Bætið þá rjómanum út í og látið malla með lauknum í nokkrar mínútur. Rjóminn á að taka í sig góðan lit úr lauknum. Bætið gráðaostinum út í og leyfið að bráðna. Setjið timjan út í og bragðið loks til með salti og pipar eins og þarf.