Risotto er upprunalega frá norðurhluta Ítalíu þar sem hrísgrjón eru ræktuð í Po-dalnum. Þessi útgáfa þar sem spennandi brögðum ægir saman er með chorizo-pylsu og kjúkling ásamt fullt af rósmarín og litlum tómötum sem hafa verið ofnbakaðir ásamt balsamikediki.
- 3 dl Arborio-grjón
- 2 kjúklingarbringur, skornar í litla bita
- 100 g chorizo, saxað
- 1 rauðlaukur, saxaður
- 1 kúrbítur, skorinn í litlar ræmur
- 3-4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
- 2 dl hvítvín
- 75 g parmesan, rifinn
- 1 líter kjúklingasoð
- 3 rósmarínstönglar
- 1 box konfekt- eða kirsuberjatómatar
- balsamikedik
- ólífuolía
- smjör
- salt og pipar
Setjið tómatana í eldfast mót ásamt einum rósmarínstöngli. Saltið og piprið. Hellið vænni skvettu af ólífuolíu yfir og síðan annarri af balsamikediki. Setjið inn í 175 gráðu heitan ofn og eldið í um 30 mínútur.
Á meðan er olía hituð á stórri pönnu. Mýkið rauðlaukinn í 3-4 mínútur ásamt hvítlauknum og söxuðu rósmarín. Bætið saxaðri chorizo-pylsunni út á pönnuna ásamt kjúklingnum og steikið í um 5 mínútur. Þá er hrísgrjónunum bætt út á og velt um á pönnunni með sleif í 2-3 mínútur. Hellið hvítvíninu út á og látið það sjóða niður að mestu.
Þá er komið að því að bæta kjúklingasoðinu saman við, ausu og ausu í einu þar til að grjónin eru tilbúin. Þau eiga ekki að vera mauksoðin heldur enn með örlitlu biti í miðjunni. Hrærið reglulega í með sleif. Þetta tekur um 20 mínútur. Á miðri leið, eftir um tíu mínútur, er kúrbítsræmunum bætt saman við.
Þegar grjónin eru tilbúin er klípu af smjöri bætt saman við ásamt rifna parmesan-ostinum. Loks er tómötunum hrært varlega saman við ásamt balsamiksoðinu sem myndaðist á meðan tómatarnir voru bakaðir. Látið standa í 3-4 mínútur og berið síðan fram.
Með þessu gott rautt Toskana-vín, t.d. Centine eða Poggione.