Gunnsteinn og Hilmar sigruðu í Absolut Invite

Það var mikið um að vera á Icelandair Hotel Reykjavík Marina á dögunum þegar að sex af bestu barþjónum landsins kepptu þar til úrslita í Absolut Invite keppninni. Alls sendu 24 barþjónar inn uppskriftir í keppninni og eftir fyrstu umferð þar sem að þeir urðu m.a. að þreyta skriflegt próf voru sex eftir.

Hver og einn þeirra kom með einn drykk í keppnina en þurfti einnig að setja annan saman úr hráefni sem þeir fengu ekki að sjá fyrr en á staðnum. Þá urðu þeir að velja eitt lag með drykknum sínum sem á einhvern hátt væri einkennandi fyrir hann.

Daddi diskó hélt uppi stemmningunni á meðan keppnin fór fram en dómnefndina skipuðu þeir Steingrímur Sigurgeirsson hjá vinotek.is, Erpur Eyvindarson tónlistarmaður og Ásgeir Már Björnsson, yfirbarþjónn á Slippbarnum.

Þegar stig úr forkeppninni og úrslitakeppninni höfðu verið talin saman stóðu þeir Gunsteinn Helgi á Sushi Samba og Hilmar Alexander á Loftinu uppi sem sigurvegarar og verða þeir því fulltrúar Íslands í alþjóðlegu Absolut Invite keppninni í Stokkhólmi sem haldin verður bráðlega.

Drykkur Gunnsteins hét Absolut Amazing og drykkur Hilmars Alexanders Vanilla Passion Paradise.

Aðrir sem kepptu voru þeir Johnny Jónsson yfirbarþjónn á Kolabrautinni með drykkinn Absolut Agúrka,Arnaldur Bjarnason veitingastjóri á Tapasbarnum með Absolutely Bonkers,  Aðalsteinn Bjarni á Slippbarnum með Absolut Nordic og Guðmundur Sigtryggsson yfirbarþjónn á Icelandair Hotel Hilton Nordica með drykkinn Last Call.

Smellið á nafn drykkjanna til að sjá uppskriftina að þeim og myndstef þar sem keppendur hrista þá saman undir þeim lögum sem þeir völdu.

 

 

Deila.