Heimabökuð pizza

Það er gaman að baka pizzu og móta hana að vild með öllu því sem manni þykir gott. Ef menn nenna ekki eða hafa ekki tíma til að gera deigið sjálfir er hægt að kaupa ágætis tilbúin deig í flestum búðum en svo er auðvitað hægt að taka þett frá a til ö.

Hitið 3 dl af vatni í örbylgjunni þannig að það verði vel volgt. Bætið út í einu bréfi af þurrgeri, teskeið af sykri, klípu af salti og skvettu af olíu hrærið vel saman.

Setjið 6-7 dl af hveiti í skál. Gott er að nota venjulegt hveiti og fínmalað spelt nokkurn veginn til helminga. Hvað venjulega hveitið varðar þá er Europris-hveitið sterkjumikið og hentar betur en flest önnur í svona bakstur.

Blandið gerblöndunni saman við hveitið og látið deigið lyfta sér í rúman hálftíma á volgum stað.

Setjið smá hveiti saman við deigið og hnoðið það vel. Það á verða teygjanlegt og auðvelt meðferðar, þannig að maður geti nánast togað það og teygt að vild. Mótið deigið á plötuna sem þið ætlið að nota.

Penslið deigið með ólívuolíu og setjið síðan eina dós af maukuðum tómötum út á.

Setjið inn í  heitan ofninn, á hæsta mögulega hitastigi. Bakið þar til pizzan fer að verða stökk. Takið hana þá út og setjið annað meðlæti og ost á. Og svo strax inn í sjóðheitann ofninn með pizzuna og bíðið þar til osturinn hefur bráðnað.

Það er til dæmis frábært að nota ítalska eða spænska skinku, tómata skorna í þunna sneiðar og papriku. Besti osturinn er Mozzarella.

Eða þá með steiktu nautahakki krydduðu með þurrkuðu oregano, fínt skornum laukhringjum og smá muldum gráðosti og rjómaosti í bland við mozzarella-ostinn.

Senda á Facebook | Skoðanir (1)

Ummæli

04.06.2010 | 21:24 | hrafnhildur árnadóttir pizza fyrir okkur heima






Senda skoðun
Hreinsa texta