Það er vinsælt hjá matarklúbbum og vinahópum sem hittast til að borða saman að láta máltíðina hafa eitthvert tiltekið þema. Það er til dæmis hægt að halda georgíska veislu en þótt matargerð Kákasusríkisins Georgíu sé ekki sú þekktasta býður georgíska eldhúsið upp á ótrúlega marga spennandi rétti.
Georgíumenn eru gífurlega gestrisnir og lífið snýst að miklu leyti um að gera vel við sig og aðra í mat og drykk. Georgísku veisluborðin eru víðfræg og þegar gesti ber að garði er ávallt slegið upp veislu. Borðhaldið fylgir ströngum hefðum og stjórnar sérstakur veislustjóri eða tamada borðhaldinu. Hans hlutverk er að sjá til þess að allir borði og drekki nóg en ekki mikið og að gestum leiðist ekki við borðið. Oftast er gestgjafinn í hlutverki tamada en ef um stóra veislu er að ræða er fenginn utanaðkomandi aðili, yfirleitt öldungur sem virðing er borin fyrir.
Tamadan heldur fjölmargar skálaræður yfir borðum þar sem skálað er fyrir gestgjafanum, fjölskyldu hans og öllum öðrum sem með einhverjum hætti tengjast matargestum. Þá sér tamadan til þess að þeir gestir sem hafa eitthvað að segja komist að og geti flutt skálaræðu. Georgíumenn dreypa ekki á víni með matnum. Að lokinni hverri skálaræðu tæma þeir hins vegar glasið. Það er ekki mælt með því að fylgja þeim sið yfir borðum.
Maturinn sjálfur er fjölbreyttur en aftur og aftur koma hins vegar nokkur hráefni við sögu í mismunandi hlutverkum og má þar helst nefna kóríander og valhnetur. Maturinn er bragðmikill og bragðsamsetningar framandi og spennandi.
Það er tilvalið að byrja máltíð á Khigali eða kjötfylltum hveitikoddum til að koma bragðlaukunum af stað. Síðan verða réttirnir að koma hver af öðrum til að georgíska veislan verði sem næst fyrirmyndinni. Chkmeruli er kjúklingur með valhnetum og önnur nokkuð áþekk útgáfa þar sem hnetusósa er sett yfir kjúklinginn er Bazhe. Köftas eru frábærar lambakjötbollur með myntu, sem er hægt að steikja eða grilla. Með Köftas er nauðsynlegt að hafa Mkhali sem er rauðrófu- og valhnetumauk. Loks má bera fram Basturma sem er nautakjöt á spjótum með haug af fersku grænmeti. Með Basturma verður auðvitað að vera Kindiz Satsebela sem er köld kóríandersósa. Með þessu öllu er svo ómissandi að hafa nýbakað ostabrauð eða Khatchapuri og georgískt salat og jafnvel eggaldin og hnetumauk.