Jacobs Creek Reserve Shiraz 2008

Jacobs Creek er lítil á í Barossa-dalnum sem þrátt fyrir að vera ekki tilkomumikil er orðin heimsþekkt þökk sé víninu sem nefnt er eftir henni.

Þetta er flottur Barossa Shiraz, dökkur og kryddaður með súkkulaðihjúpuðum plómum og myntu í nefi. Í munni sultað og feitt, afskaplega mjúkt og þykkt.  Með lambakjöti, ræður við flest allt meðlæti.

2.999 krónur. Góð kaup.

 

 

Deila.