Haukur bloggar: Þvörusleikir frá Borg

Upphitun okkar fyrir jólabjóranna heldur áfram og nú er komið að Þvörusleiki frá Borg. Undirritaður verður að viðurkenna að það er alltaf áhugavert að smakka jólabjóra frá Borg. Fyrir tveimur árum voru þeir með einn besta bjór sem framleiddur hefur verið á Íslandi, Giljagaur. Í fyrra voru þeir með hinn sérstaka og afar umdeilda Stúf. Því er viss eftirvænting í lofti á hverju þeir taka upp á þetta árið.

Hugmyndin eða öllu heldur uppskriftin á bakvið Þvörusleiki er óvenjuleg. Rauðöl getur verið þrennskonar. Hið sæta og maltmikla írska rauðöl, hið súra belgíska eða öllu heldur flemska rauðöl, og svo hið bandaríska rauðöl. Þvörusleikir mun tilheyra því síðast nefnda en þrátt fyrir mikinn malt karakter að þá er hann ríkulega humlaður og beiskur. Hann er óvenjulegur að því leytinu til að Borg hefur eikað bjórinn en það er fáheyrt að ríkulega humlaðir bjórar séu einnig eikaðir. Borg hefur einnig þurrhumlað bjórinn með hinum vinsæla Citra humli en hann er afar vinsæll hjá litlum brugghúsum víða um heim í dag.

Í glasi er bjórinn fallegur, dökkrauður með ljósri froðu. Örlítið botnfall er í bjórnum. Í nefi eru humlar fremstir. Citra er áberandi með sinn greip tón og angan af límónu og sítrus ávöxtum. Einnig má finna örlítinn kókos frá eikinni. Á tungu hefur hann meðalfyllingu, með ljúfum ávaxtatónum en einnig örlítinn keim af ristuðu malti. Í endann er hann beiskur en þó frekar opinn.

Í heildina er þetta frábær jólabjór. Drekka skal hann ferskan til að njóta humlanna og líklegast er þetta einn af betri bjórum Borgar frá upphafi.

Deila.