Bodegas Campillo setur sterkan svip á þorpið Laguardia í Rioja á Spáni. Þetta er vínhús í „chateau“-stíl, þ.e. þrúgurnar sem notaðar eru í vínið eru ræktaðar á ekrum í kringum vínhúsið, sem er ekki mjög algengt í Rioja. Campillo er ungt vínhús, reist á síðasta áratug síðustu aldar af Faustino-samstæðunni.
Reserva 2010 vínið er nútímalegt Rioja með ungum, flottum og kröftugum kirsuberjaávexti er rennur saman við ameríska eikina, kryddaða og heita, vanillu og kaffi. ungt með góðri sýru og tannínum. Opnið með að minnsta kosti klukkustundar fyrirvara og umhellið gjarnan.
80%
2.999 krónur. Flótt og nútímalegt Riojavín.
-
8