Kryddlögurinn er galdurinn á bak við vel heppnaðar Fajitas. Hér er útgáfa sem að hentar vel fyrir kjúkling.
Kryddlögur
- 1/2 dl ólífuolía
- safi úr einni sítrónu
- 3 pressaðir hvítlauksgeirar
- 2 tsk óreganó
- 2 tsk cummin
- 1 tsk paprika
- 1 tsk chiliflögur
- 1 tsk chili
- 1 tsk salt
Blandið öllu saman og setjið í ziplock-poka (eða skál). Skerið kjúklingabringur eða kjúklingalæri í strimla og blandið saman við marineringuna. Látið liggja í leginum í 1-2 klukkustundir.
- 2 paprikur
- 2 rauðlaukar
Skerið paprikur í strimla og lauk í sneiðar. Mýkið í olíu á pönnu. Takið af pönnunni og geymið.
Hellið marineringunni frá. Steikið kjúklinginn í 5 mínútur. Bætið þá paprikunni og lauknum aftur út á pönnuna. Hitið.
Berið fram með heimatilbúnu salsa og guacamole, sýrðum rjóma, rifnum osti og tortillapönnukökum.