Tómatar og ólífur eru það sem hvað helst einkenna matarhefðir við Miðjarðarhafið og Provence í Frakklandi er þar engin undantekning. Tomates á la Provençal eru jafneinfaldir og þeir eru góðir.
Það sem þarf er:
- Tómatar
- Brauðrasp, heimatilbúið. Ristið brauðsneiðar í ofni og maukið í matvinnsluvél.
- Steinselja, flatlaufa, söxuð
- Hvítlaukur, fínt saxaður
- Ólífuolía
Skerið tómatana í tvennt og hreinsið innan úr þeim með skeið.
Blandið saman brauðmylsnunni, saxaðri steinseljunni og hvítlauknum. Hlutföllinn geta verið breytileg en ágætt er að miðað við nokkurn veginn jafnt hlutfall á milli steinselju og brauðmylsnu og svo hvítlauk eftir smekk.
Setjið tómatana í fat og fyllið með brauðmylsnublöndunni. Hellið vel af ólífuolíu yfir mylsnuna í tómötunum og setjið fatið inn í 200 gráðu heitan ofn. Bakið í um 30-45 mínútur, eftir stærð tómatanna. Þeir eiga að vera orðnir vel mjúkir.
Frábært með t.d. lambakjöti.