Turning Leaf Zinfandel 2011

Ef einhver þrúga er einkennandi fyrir Kaliforníu umfram aðrar þá er það líklega Zinfandel. Auðvitað eru flest stærstu vín Napa og Sonoma gerð úr Cabernet, engin vín eru hins vegar kalifornískari en Zinfandel-vínin.

Þetta eintak frá Turning Leaf er fullt af þykkum og heitum ávexti, dökkri berjasultu, þroskuðum plómum og bláberjum, nokkur angan af reykfylltu kínversku tei, Lapsang Souchong og dökku súkkulaði. Ágætlega þéttur og massívur sætur, kryddaður ávöxtur í munni. Hið prýðilegasta vín fyrir peninginn.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.