Baron de Ley Reserva 2009

Baron de Ley er eitt af yngri vínhúsum Rioja, „einungis“ rétt tæplega þrjátíu ára gamalt. Víngerðin er hins vegar í gömlu munkaklaustri syðst í héraðinu og stíll vínanna einmitt skemmtileg blanda af hinu klassíska og hinu nútímalega.

Rauð og svört ber, þroskuð, eikin er áberandi, vanilla, súkkulaði og reykur, nokkuð kryddað, ferskar kryddjurtir í nefi. Líkt og mörg betri Rioja-vín er stíllinn sóttur til Bordeaux, tignarleg uppbygging, nokkuð tannískt og með töluverðri franskri eik sem styður við þroskaðan ávöxtinn. Langt og flott. Vín fyrir rautt kjöt, lamb og naut, jafnvel hreindýr.

2.698 krónur. Frábær kaup.

Deila.