Muga Reserva 2011

Muga hefur í gegnum árin verið eitt af allra bestu vínhúsum Rioja, að mörgu leyti skólabókardæmi um hvernig vín þessa héraðs eiga að vera. Stíllinn er klassískur Rioja-stíll, sem hefur engu að síður þróast með nútímalegri áherslum í héraðinu.

2011 árgangurinn kemur í kjölfar hins stórkostlega 2010 árgangs, ávöxturinn er rauðari og ferskari, þykkur, nokkuð kryddaður, fennel, miðjarðarhafskryddjurtir, vottur af reyk, eikin er aldrei langt undan. Vel uppbyggt, tannín mjúk og sæt. Virkilega flott vín, gefið því tíma til að opna sig.

3.999 krónur. Frábær kaup.

Deila.