Manor House Cabernet Sauvignon 2013

IMG_1482Manor House er vín frá Nederburg, einu sögufrægasta vínhúsi Suður-Afríku og nafn þess vísar til óðalsetursins sem enn í dag er eitt helsta kennileiti Stellenbosch vínhéraðsins.

Þetta er suður-afrískt vín í fingurgómana, svolítið „heitara“ en fyrri árgangur. Sultuð, dökk ber, reykur og lyng, í munni sætur, þykkur og mjúkur ávöxtur.

80%

2.599 krónur. Frábær kaup. Fínt með grillkjöti, þess vegna með BBQ-sósu.

  • 8
Deila.