Willm Riesling Reserve 2014

img_2761Hvítvínin frá Willm í Alsace eru klassísk og flott matarvín og þetta er eitt af þeim frönsku héruðum þar sem að maður fær hvað mest fyrir peningin. Góð Alsace-vín eru frábær en jafnvel þau allra bestu kosta ekki formúur ef borið er saman við sambærileg svæði.

Riesling er sú þrúga sem nýtur sín hvað mest Frakklandsmegin við Rínarfljót. Fölgult á lit, í nefinu perur, kryddjurtir, epli, bæði rauð og græn og örlítil lampaolía. Í munni þykkt, þurrt með ferskri sýru og flottum greipávexti.

80%

2.699 krónur. Frábær kaup. Með öllum góðum sjávarréttum. Reynið með humri.

  • 8
Deila.