Henri Bourgeois er einn af bestu framleiðendum Sancerre-vína sem eins og allir vita eru þessi vín frá hjarta Frakklands einhver mögnuðustu Sauvignon Blanc-vín sem hægt er að fá. Í Sancerre eru hins vegar einnig framleidd rauðvín (og rósavín) úr Pinot Noir en þau sjást ekki oft hér á landi enda eru þau fyrst og fremst fáanleg á heimaslóðum og næsta nágrenni.
Le Baronne er fallega ljósrautt, bjart og berjamikið, rauð ber, kirsuber, jarðarber og skógarber, örlítið krydd og örlítil eik, ferskt, lifandi og þægileg.t
80%
3.999 krónur. Sérpöntun.
-
8