Trimbach Gewurztraminer Reserve 2014

Trimbach er einn af þessum stórkostlegu hvítvínsframleiðendum í Alsace sem tekst að gera mikilfengleg vín á vel viðráðanlegu verði. Það er nefnilega þannig að góð vín frá Alsace kosta alla jafna miklu, miklu minna en vín frá öðrum af topp-vínhéruðum Frakklands, s.s. Búrgund. Og þetta eru líka með betri matarvínum sem hægt er að fá.
Alsace-þrúgurnar.
Gewurztraminer er ásamt Riesling (og stundum Pinot Gris) sem gefur af sér bestu vín Alsace. Gewurztraminer eru oft mikil vín, afskaplega krydduð (nafnið er engin tilviljun), þykk og ágeng. Þetta vín er engin smásmíði en það er hins vegar ekki yfirmþyrmandi heldur nær að halda flottum elegans. Fallega gullinn litur, í nefi appelsínubörkur og engifer ásamt kryddum, múskat, kanilstöng, vottur af blómum, ekki síst rósum. Þykkt og feitt í munni, sætur og ljúffengur ávöxtur. Þetta er vín sem ræður við jafnvel hvítt kjöt.
90%

3.599 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.