Sikiley er það ítalska víngerðarhérað sem að framleiðir hvað mest af víni í lítrum talið og á undanförnum áratugum hafa vínbændur þar í auknum mæli fært sig yfir í framleiðslu á góðum borðvínum en ekki grunnvíni fyrir framleiðslum á styrktum vínum. Donnafugata er eitt af stóru vínhúsum eyjunnar og þrúgan Nero d’Avola er þekktasta sikileyska vínþrúgan. Sherazade er trútt uppruna sínum, stútfullt af heitum, krydduðum og sólbökuðum ávexti en viðheldur þó góðum ferskleika. Það er dökkfjólublátt á litn angan af sveskjum og bláberjum, brómberjasultu, ávöxturinn þykkur og mjúkur í munni en fersk sýra gæðir vínið lífi og ferskleika.
80%
2.490 krónur. Frábær kaup. Vín fyrir grillað, marinerað kjöt og pastarétti með tómötum.
-
8