
Hjónin Rita Tua og Virgilio Bisti festu 1984 kaup á vínbúgarði í þorpinu Sovereto suður af Bolgheri í Toskana. Upphaflega voru hektararnir tveir á lítilli ekru sem heitir Notri en hafa nú vaxið ´´í þrjátíu og er öll vínrækt þeirra lífræn. Tua Rita-vínin urðu fljótt algjör „költ“-vín ekki síst Merlot-vínið Redigaffi sem varð líka fyrsta ítalska vínið til að f´á fullt hús stiga eða 100 punkta skor hjá Robert Parker.
Rosso dei Notri er „standard“-vínið frá Tua Rita, blanda úr Cabernet Sauvignon, Merlot, Syrah og Sangiovese. Þrúgurnar koma af sömu ekrum og stóru vínin. Þrúgurnar í þetta vín eru teknar í hús fyrr á meðan bestu klasarnir eru skildir eftir í rúma viku til að þroskast áfram í stóru vínin Redigaffi og Per Sempre. En þetta vín er svo sannarlega ekkert slor, dimmrautt með kirsuberju og bláberjum í nefinu, mildur reykur og krydd. Það er svolítið lokað í byrjun, en gefið því tíma og það opnar sig og springur út í glasinu. Eikin er mild og vel samofin, frábærlega balanserað og glæsilegt vín. Má vel geyma í 3-5 ár.
3.891 krónur. Frábær kaup. Þetta er magnað vín fyrir peninginn. Geggjað matarvín.
-
10