Robert Mondavi Napa Valley Cabernet Sauvignon 2018

Víngerð Robert Mondavi hefur verið eitt af hryggjarstykkjunum í Napa-dalnum allt frá því að Mondavi heitinn reisti hana við To Kalon-ekruna í Oakville árið 1966. Þó svo að Mondavi sé fallinn frá og hann hafi selt víngerðina til Constellation-risans árið 2004 eru bestu ekrurnar enn á sínum stað og vínin standa fyrir sínu.

Blandan í þessu víni er klassísk Bordeaux-blanda, Cabernet er ríkjandi með um 80% en restin er Merlot, Cabernet Franc , Petit Verdot og Malbec, þrúgurnar ræktaðar á ekrum í Oakville, Stags Leap, Rutherford og Yountville.

Klassískur Napa Cab, liturinn djúpfjólublár og þéttur, sólber áberandi í nefinu, heit og þroskuð, vindlakassi, eikin sæt og sviðin, þykkt og mjúkt ´´í munni, tannín fínpússuð en kröftug, langt og þétt. Umhellið tímanlega.

100%

7.899 krónur. Frábær kaup. Með nautakjöti, með villibráð s.s. hreindýri eða rjúpu.

  • 10
Deila.