
Vínhúsið La Marciana (þar sem vísað er til plánetunnar Mars) er samstarfsverkefni Serrano-fjölskyldunnar sem hefur stundað vínrækt í Rioja um aldabil og fransk-austurrísku hjónanna Philipp og Nadine. Í sameiningu framleiða þau vín þar sem leitast er eftir að ná fram sömu áhrifum og í vínum Chateauneuf-de-Pape í Frakklandi og halda í vínhefðir Rioja. Hér er það ekki Tempranillo sem er í aðalhlutverki heldur Garnacha sem einmitt er fyrirferðarmikil í Chateauneuf-vínunum undir nafninum Grenache. Fagurrautt með angan af rauðum ávexti, rifsberjum, sultuðum hindberjum og telaufum. Ferskt, nokkuð sýrumikið, fínlegt og alls ekki hefðbundið Rioja í stílnum.