Arzuaga Crianza 2022

Bodegas Arzuaga er vínhús í héraðinu Ribera del Duero. Það var stofnað árið 1993 af Arzuaga Navarro fjölskyldunni sem keypti ekrur við hlið Vega Sicilia, þekktasta vínhúss Spánar. Hér var fáanlegt fyrir nokkrum árum vínið La Planta frá þessu sama húsi en Arzuaga-vínið er skörinni ofar í vínlínunni og þetta er vínið sem vínhúsið sjálft lítur á sem flaggskipið. Þrúgurnar eru Tempranillo, Cabernet Sauvignon og Merlot, ræktaðar á ekrum í rúmlega 900 metra hæð yfir sjávarmáli. Og þetta er bara ansi mikið vín þó það sé einungis ung Crianza. Dökkt, út í svarfjólublátt með bláberjum og krækiberjum í nefi, mildri vanillu og dökku súkkulaði. Það er kröftugt og þykkt og tannín rífa svolítið í, ágætt að gefa því smá tíma til að mýkjast.

90%

4.384 krónur. Frábær kaup, mjög stórt og flott vín fyrir peninginn, tilvalið fyrir fitusprengda nautasteik eða lambalæri.

  • 9
Deila.