Chateau la Croix Chaigneau 2021

La Croix Chaigneau er það sem Frakkar nefna „annað“ vín eða „deuxiéme“ vínhússins Chateau Haut-Chaigneau. Þetta konsept er mjög algengt í Bordeaux og kemur annað vínið alla jafna af sömu ekru og stóra vínið eða sjálft Chateau-vínið en notaðar eru þrúgur af yngri vínvið á ekrunum sem ekki eru enn farnar að gefa ávöxt af fullum þunga. Oft eru mjög góð kaup í þessum vínum og það á svo sannarlega við hér. Vínið er frá Lalande-de-Pomerol-svæðinu innan Bordeaux. Þetta er um 1100 hektara svæði norður af Pomerol á hægribakka fljótanna Garonne og Dordogne. Dimmrautt, með rauðum, þroskuðum ávexti, fíkjur, ristaðar hnetur og kryddjurtir. Ungt en ágætlega mjúkt, það hefur góða fyllingu og klassískt Bordeaux-yfirbragð.

90%

3.999 krónur. Frábær kaup. Með önd eða lambi.

  • 9
Deila.