Paul Mas Cabernet Sauvignon 2012

Þetta er bara ansi snotur suður-franskur Cabernet frá Paul Mas og alltaf jafn ánægjulegt að sjá hvað Languedoc-héraðið sem að maður hefur lengi bundið vonir við er að koma sterkt inn.

Klassískur og fínn cabernet, smá cassis og trönuber, fjólur og rósir, djúpur sýrumikill ávöxtur, þéttur og flottur, tannískt. Ekki vitlaust að leyfa víninu að anda í 1-2 klukkustundir.

2.050 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.