Hvítu trufflurnar í Alba

Mörg af bestu vínum Ítalíu koma frá Piemonte en  héraðið er ekki síður frægt fyrir matargerð sína. Villibráð er víða að finna og villisvín og kanínur eru til dæmis algeng á matseðlum í Piemonte.

Frægasta afurð héraðsins að vínunum undanskyldum eru trufflurnar eða tartufo sem má finna í skóglendinu á haustin en engar trufflur þykja mikilfenglegri en hvítu trufflurnar frá Langhe sem nefnast tartufo di Alba eða Alba madonna. Trufflurnar vaxa við rætur trjána í skógum Langhe og þótt þær finnist á fleiri svæðum Ítalíu ná þær af einhverjum ástæðum hvergi sömu gæðum og þar. Angan þeirra er einstök og það þarf einungis nokkrar flísar til að umturna rétti eða breyta hefðbundinni ólívuolíu í magnaða truffluolíu. Að sjálfsögðu á ekkert betur við rétti með trufflum en Barolo og Barbaresco.

Trufflur  eru mikilvægur hluti af menningunn í Piedmonte. Það þarf að fá leyfi til að leita að trufflum og hafi það fengist má leita alls staðar í héraðinu. Ef  maður er ekki með leyfi þá er einungis heimilt að leita að trufflum  á þínu einkalandi. Hvítu trufflurnar  eru mun eftirsóttari og tífalt dýrari en þær dökku og notaðir eru sérþjálfaðir hundar til að þefa þær uppi. Hundarnir eru yfirleitt blendingar, ljósir á lit þannig að þeir sjáist betur í skóginum og miðlungsstórir. Nauðsynlegt er að fylgja hundinum náið eftir til að geta grafið truffluna upp um leið og hann finnur hana – annars er hætta á að hann borði hana. Mikilvægt er að raska jarðveginum sem minnst því að þetta er ákveðið vistkerfi sem býr til truffluna og ef þú viðheldur því þá er hægt að ganga aftur að trufflum á sama stað að ári.

Besti tíminn fyrir truffluleit er yfirleitt á haustin, fram í desember. Þá byrja trufflurnar að gefa frá sér lykt og því hægt að leita þar uppi.

Deila.