First Press er lítið vínhús í Napa í Kaliforníu og er eitt af nokkrum vínhúsum í eigu Delicato-fjölskyldunnar.
Þetta er klassískt Napa-Chardonnay og þar að auki á hinu prýðilegasta verði miðað við það sem gengur og gerist fyrir vín af þessum slóðum. Í nefi sætur melónu-ávöxtur og vanilla, eldspýtustokkur, ristað, sítrónubörkur. Þurrt og eikað í munni, ágætis lengd.
3.990 krónur. Góð kaup.