Monasterio er spænska orðið yfir klaustur og finca mætti þýða sem vínhús eða það sem Frakkar kalla „chateau“. Þrúgurnar sem notaðar eru í þetta vín eru einmitt ræktaðar á ekrunum í kringum gamalt klaustur í suðurhluta Rioja, nánar tiltekið við Mendavia í Rioja Baja.
Finca Monasterio er „nútímalegasta“ vínið frá Baron de Ley og það sem minnir mest í stílnum á stór og mikil Nýjaheimsvín. Mjög dökkt á lit með bláberja- og sólberjasafa í nefi í bland við kaffi og vanillu, nokkuð kryddað, vottur af negul. Mjög mjúkt og þykkt, heitt, eikin áberandi, enn ungt, mildara en síðustu árgangar, má umhella. Vín með grilluðu nautakjöti og lambi.
3.998 krónur. Mjög góð kaup.