Vínin frá Pfaffenheim í Alsace í Frakklandi hafa tekið smá breytingum, að minnsta kosti að ytra byrði. Vínin eru nú seld undir nafninu Pfaff og miðarnir eru í fleiri litum en þeim dökkrauða sem var einkennismerki Pfaffenheim.
Það breytist hins vegar ekki að þetta eru enn þá vönduð vín á góðu verði. Þetta Pinot Gris er fölgult á lit. Safaríkt í nefi , ávöxturinn feitur og þykkur, með sætt yfirbragð, hunang, blóm (verbena) og fíkjur.
2.650 krónur. Mjög góð kaup.