Monte Velho Branco 2013

Herdado de Esparao í Alentejo er með stærstu vínhúsum Portúgal og hefur skotist upp á stjörnuhimininn eftir að ásralski víngerðarmaðurinn David Baverstock, sem einnig gerir m.a. vínin fyrir Quinta do Crasto og Quinta de la Rosa tók við víngerðinni árið 1992.

Hvítvínið Monte Velho er þriggja þrúgna blanda úr portúgölsku þrúgunum Antão Vaz, Roupeiro og Perrum. Tær fölgulur litur, fersk angan, apríkósur, sítrus og vottur af saffran. Vínið sækir á, það þarf smá tíma, brakandi fersk sýra, ungt og lifandi. Matarvín.

2.298 krónur. Frábær kaup.

Deila.