Riesling er einhver magnaðasta vínþrúga heims og hvergi nær hún sömu hæðum og í Þýskalandi. Því miður fáum við hins vegar sjaldan að njóta góðu þýsku hvítvínanna. Flest þeirra þýsku vína sem hér eru og hafa verið seld eru ódýr og yfirleitt sæt hvítvín. Ekki hin tignarlegu þurru Riesling-vín sem endurspegla þrúguna best (ásamt auðvitað eðalsætu Trockenbeeren og Auslese-vínanna).
Vínhúsið Peter Jakob Kühn er á svæðinu Rheingau í Rínardalnum en þar tekur fljótið á sig sveig og gefur vínviðnum færi á að ná fullkomnum þróska í suðurhlíðum. Þetta er gamalgróið vínhúsi þar sem ellefta kynslóð fjölskyldunnar sér nú um víngerðina. Vínræktin hefur um árabil verið bæði lífræn og lífefld (biodynamic) og þetta eru með betri vínum svæðisins. Jafnvel þau einföldustu eins og þetta Jacobus-vín eru mögnuð Riesling-vín.
Fallega gullið á lit með þykkt og feitt yfirbragð. Þurr angan, þarna eru þurrkaðar sítrónur og sítrónubörkur, mandarínur, apríkósur, vínið töluvert míneralískt, vottur af kalki og olíu. Djúpt og þétt í munni, þurrt, ferskt, sýrumikið og lifandi. Magnað vín.
2.940 krónur. Frábær kaup.