Turning Leaf Zinfandel 2012

Zinfandel eða Zin er til í mörgum útgáfum í Kaliforníu. Sæt eða þurr hvítvín og rósavín og létt eða þung rauðvín. Það má segja að þessi kalifornískasta af öllum þrúgum geti tekið á sig hvaða mynd sem er. Í eðli sínu er þetta hins vegar kraftmikil og flott rauðvínsþrúga og þetta vín frá Turning Leaf er ágætt eintak af ekkert of dýru Zinfandel-víni.

Dökkt, í nefi sultuð kirsuber, sólber og súkkulaði, eikin sækir síðan á með mjúkum og sætum vanillutónum. Í munni afskaplega mjúkt, mild tannín og slípaður ávöxtur. Grillvín.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.