Dourthe er eitt af þekktustu og bestu vínfyrirtækjum Bordeaux. Nokkur verulega góð Chateau eru í eigu þess en jafnframt kaupir Dourthe þrúgur og býr til nokkrar afbragðs blöndur.
Þetta rauðvín er auðvitað eins og önnur Bordeaux-vín blanda af Cabernet Sauvignon og Merlot. Kröftugt vín, ungt, ávöxturinn svolítið hrár, þarna má greina krækiber, sólber og plómur. Eikin kemur vel í ljós í munni, ágæt tannín og góður strúktúr. Virkilega flott vín.
1.990 krónur. Mjög góð kaup.