Hardy’s Chardonnay-Semillon 2013

Hardy’s vínin voru með fyrstu áströlsku vínunum sem fóru á flug á íslenska markaðnum og eflaust muna einhverjir eftir flöskunum með fuglamyndunum. Þetta vín er hins vegar úr seríunni Stamp Collection

Fölgult með léttri, ferskri sítrusangan. Þarna eru líka ferskjur og eik sem gefur tón af vanillusykri. Sætur, suðrænn ávöxtur í munni og ágæt sýra.

1.999 krónur. Góð kaup.

Deila.