Montecillo Gran Reserva 2007

Bodegas Montecillo var stofnað árið 1874 og er því með elstu vínhúsunum í Rioja. Það hefur verið í eigu Osborne-fjölskyldunnar frá árinu 1973 einhverjar áhrifamestu vínættar Spænar.

Mjúkt og tignarlegt, eikin er þykk, mjúk og áberandi, vel samofin ávextinum, kirsuberjum og skógarberjum, nokkuð kryddað, kaffi, vanilla. Flauelsmjúkt og þykkt í munni. Vel gerð Gran Reserva. Þess má geta að vínið hlaut gullverðlaun á Decanter World Awards fyrr á þessu ári.

3.599 krónur. Frábær kaup.

Deila.