Prunotto Barbaresco DOCG 2011

Prunotto er gamalgróið vínhús í Piemont á Ítalíu. Það varð upphaflega til þegar að Prunotto-fjölskyldan tók yfir vínsamlag bænda á Langhe svæðinu á fyrri hluta síðustu aldar. Smám saman jóx húsinu ásmegin og fór í samstarf við Antinori-fjölskylduna 1989 sem í fyrstu tók að sér dreifingu og sölu á vínunum en síðan einnig víngerðina.

Hér er á ferðinni, dæmigerður og fínn Barbaresco, en þau vín eru eins og nágranninn Barolo ávalt gerð úr Nebbiolo-þrúgunni. Balsamikviður í nefi í bland við dökkan, rauðan ávöxt,, tóbak, kóngabrjóstsykur, langt og rismikið, tannískt og þétt. Flott matarvín.

4.998 krónur. Góð kaup.

Deila.