Leopard’s Leap Chenin Blanc 2014

Leopard's LeapLeopard’s Leap er eitt af vínhúsum Hein Koegelenberg í Franchoek í Suður-Afríku en hann stjórnar einnig hinu fræga vínhúsi La Motte. Leopard’s Leap eru yfirleitt þægileg vín með ávextinum í forgrunni.

Chenin Blanc-þrúgan kemur frá Loire-svæðinu í Frakklandi en hefur fengið mikla útbreiðslu í Suður-Afríku og er þar líka stundum kölluð Steen. Í nefi hvít blómaangan, mild, létt, gul melóna, sýrumikið og fersk. mjög þurrt, vottur af seltu.

70%

2.099 krónur. Góð kaup. Fínn fordrykkur.

  • 7
Deila.