Leopard’s Leap er eitt af vínhúsum Hein Koegelenberg í Franchoek í Suður-Afríku en hann stjórnar einnig hinu fræga vínhúsi La Motte. Leopard’s Leap eru yfirleitt þægileg vín með ávextinum í forgrunni.
Chenin Blanc-þrúgan kemur frá Loire-svæðinu í Frakklandi en hefur fengið mikla útbreiðslu í Suður-Afríku og er þar líka stundum kölluð Steen. Í nefi hvít blómaangan, mild, létt, gul melóna, sýrumikið og fersk. mjög þurrt, vottur af seltu.
70%
2.099 krónur. Góð kaup. Fínn fordrykkur.
-
7