Nemes er eitt af toppvínunum frá Rivetto-fjölskyldunni í Piemont á Ítalíu. Vínhúsið er til húsa í þorpinu Serralunga d’Alba hátt uppi á hæð sem horfir yfir hjarta Barolo-svæðisins í Langhe í Piemont.
Fallega fjólublátt. Í nefi fjólur, kröftug kirsuberjaangan, krækiber, vottur af menthol, þurrt og kryddað í munni, þykkt, þægilega tannískt.
90%
3.490 krónur. Frábær kaup. Yndislegt matarvín. Reynið með bragðmiklu svepparisotto eða mildri villibráð.
-
9