Chateau Pibran er vissulega ekki eitt af “stóru” húsunum í Pauillac í Grand Cru-flokkuninni, en Tour Pibran er „second“ vín vínhússins. Ekrur vínhússins eru hins vegar á besta stað og umluktar ekrum nokkurra “stóru” vínhúsanna, nefnilega Mouton-Rothschild, Pontet-Canet og Lynch Bages. Þegar við bætist að það er Jean-Michel Casez hjá Lynch Bages sem stjórnar vínhúsinu og teymið frá topphúsinu Pichon-Longueville sem sér um víngerð og verðið langt undir verði þekktari vínhúsa á svæðinu er ljóst að þetta eru vín sem vert er að gefa gaum.
Vínið hefur dökkt yfirbragð, fjólublátt á liti, í í nefi þá er það eikin sem kemur fram í fyrstu og magnar upp angan af kaffi og dökku súkkulaði, örlítið tóbak og all nokkur sólberjasulta, Mjúk tannín í munni, smá reykur sæt eik.
4.799 krónur. Flottur Bordeaux. Vín fyrir önd, hreindýr og annað góðgæti. Þolir vel smá sætar sósur.
-
8