Janúar getur verið erfiður mánuður, maður er blankur með útþaninn konfektmaga, það er myrkur allan sólarhringinn, Bára er lögst í bleyti og mæjónesan orðin gul. Eitt gott á þó janúar í pokahorninu, ísskápurinn er fullur af girnilegum ferskum kryddjurtum sem maður neyðist til að nota. Því eldaði ég um daginn þennan snilldar kjúklingarétt með afgangnum af bernaise-estragoninu og í kvöld var komið að salvíunni sem slapp naumlega undan kalkúnafyllingunni.
Ég var harðákveðin í því að elda ekki kjúklingarétt, þar sem 4 samliggjandi dagar af kalkún með salvíubragði er nóg fyrir hörðustu fiðurfés-aðdáendur. Ég lagðist því á lendur internetsins til að leita að inspírasjón og rakst þar á ansi spennandi svínakótelettur, lagaði uppskriftina aðeins til að mínum smekk og eldaði. Kjötið var gríðargott og maturinn sló í gegn. Ég bar þær fram með einfaldri kartöflumús en það væri eins hægt að hafa pasta eða polenta með.
- 4 beinlausar svínakótelettur
- 1 ristuð brauðsneið
- 1-2 msk smátt söxuð fersk salvía
- 1 tsk maldonsalt og ½ tsk nýmalaður pipar.
- ¼ bolli hveiti
- 1 egg
- 1 msk dijon sinnep
- Smjörklípa og góð olía
Rífið ristaða brauðið niður í matvinnsluvél og hakkið þar til það er orðið að grófu raspi. Blandið saman við það á grunnan disk parmesanostinum, salvíunni, salti og pipar.
Sláið eggið og blandið sinnepinu saman við á annan grunnan disk, og setjið hveitið á enn annan disk.
Berjið kóteletturnar létt ef þær eru þykkar, dýfið þeim fyrst í hveitið (en passið að hrista mesta hveitið af) svo í eggjablönduna og loks í brauðraspið. Steikið við rúmlega meðalhita í 3-4 mínútur á hlið, eða þar til kjötið hefur tekið fallegan lit.