Santa Cristina er eitt af þessum vínum sem að manni finnst að hafi alltaf verið til enda er þetta með elstu vörumerkjum Antinori-fjölskyldunnar í Toskana. Það var farið núverandi markgreifans af Antinori sem að fyrstur notaði Santa Cristina á flösku árið 1946 og síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þótt nafnið hafi haldið óbreyst hefur vínið svo sannarlega ekki gert það.
Vínið er að uppistöðu Chianti-þrúgan Sangiovese en er flokkað sem IGT þar sem að nokkrar „útlenskar“ þrúgur eru líka notaðar í blönduna, Syrah, Cabernet Sauvignon og Merlot sem gefa vínínu meiri breidd og strúktúr.
Það verður að segjast eins og er að þetta er einstaklega vel heppnað vín. Þrátt fyrir að 2014 árgangurinn hafi ekki verið sá besti í Toskana (töluverð rigning) hefur þetta vín geysimikinn karakter og þokka. Þetta er Toskana-vín út í gegn, kryddaður dökkrauður berjaávöxtur, smá hesthús og jörð, þétt, matvæn sýra og fín lengd. Svakalega fínt matarvín, berið það fram örlítið „svalt“, 16-18 gráður.
1.999 krónur. Þetta eru frábær kaup.
-
8