Basa 2015

img_2551Basa er eitt af vínunum sem Telmo Rodriguez, einn af áhugaverðari víngerðarmönnum Spánar, framleiðir. Það er gert úr Verdejo og Viura-þrúgum frá héraðinu Rueda í norðurhluta landsins.

Fölgult á lit, skarpur, fókuseraður og sætur ávöxtur, perur ferskjur og melóna en líka hvít blóm, ferskt, sýruríkt og míneralískt með þægilegri beiskju. Rueda-vínin eru frábær með t.d. sushi, pönnusteiktri bleikju eða sem fordrykkur.

80%

2.395 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.