Þrúgublandan GSM þar sem Rónarþrúgurnar Grenache, Syrah og Mourvédre koma saman er klassísk, ekki síst fyrir tilstilli Ástrala sem komu þessari skammstöfun á kortið á sínum tíma. Í þessu víni suður-afríska vínhússins Boschendal er hins vegar unnið með S+M það er að segja þrúgurnar Syrah og Mourvédre.
Dökkt á lit, angan ef heitum og sólþroskuðum, dökkum ávexti, sólber, plómur og sveskjur, kryddað, örlítið piprað með mildri reykangan. Þroskaður, sætur og þykkur ávöxturinn heldur áfram í munni, mjúkt og heitt.
70%
2.699 krónur. Mjög góð kaup. Með grilluðu kjöti. BBQ-vín.
-
7